„Hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust“

Ráðning kennara við leik- og grunnskóla í Grindavík er á lokametrunum segir formaður bæjarráðs. Fjörutíu og þrjú börn setjast á skólabekk í bæjarfélaginu næsta haust. Ekkert skólahald hefur verið í bænum í rúmlega þrjú ár. 43 NEMENDUR SETJAST Á SKÓLABEKK Í HAUST Nú þegar rúmlega sex vikur eru í skólasetningu grunnskóla eru bæjaryfirvöld í Grindavík í óðaönn að undirbúa komandi skólaár.Guðbjörg Eyjólfsdóttir formaður bæjarráðs segir allt að verða klárt.„Við réðum á vordögum til okkar skólastjóra í samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Og núna erum við búin að ráða í fimm komma fjögur stöðugildi í skólanum og ætlum okkur að ráða í þrjú og hálft stöðugildi í leikskólanum.“Fjörutíu og þrír nemendur eru skráðir. Guðbjörg segir að þeir verði hugsanlega fleiri. Fjöldi Grindvíkinga hafi lý
„Hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd