Mikil vonbrigði ef þrjú kynferðisbrot hafi átt sér stað á Kótelettunni

Þrjú kynferðisbrot tengd hátíðarhöldum á Selfossi í nótt eru til rannsóknar lögreglu. Öll brotin tengjast hátíðarhöldum Kótelettunnar þó að þau hafi ekki öll átt sér stað innan hátíðarsvæðisins að sögn Bryndísar Jóhannesdóttur, aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi.Einar Björnsson skipuleggjandi Kótelettunnar segir svona lagað aldrei hafa komið upp áður í 16 ára sögu hátíðarinnar. Skipuleggjendur leggi ríka áherslu á að tryggja öryggi hátíðargesta.„Ef allt reynist rétt þá eru það að sjálfsögðu mikil vonbrigði ef að slíkt hefur gerst,“ segir Einar. ALLT OFBELDI FORDÆMT OG MIKIL ÖRYGGISGÆSLA „En hér hefur allt ofbeldi verið fordæmt og passað upp á það með öflugasta myndavélakerfi sem nokkur hátíð á Íslandi getur státað sig af. Við erum með 45 vélar virkar í upptöku í öllum hornum til a
Mikil vonbrigði ef þrjú kynferðisbrot hafi átt sér stað á Kótelettunni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd