Hitabylgjan á Austurlandi náði hámarki um hádegisbilið þegar hiti mældist 27 gráður á nokkrum stöðum. Áfram verður besta veðrið á Austurlandi næstu daga, þó ekki jafn gott og í dag. Fréttamanni brá þegar hann leit á hitamælinn í bílnum og á honum stóð að úti væru 33 gráður.