Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ellefu ökumenn í gærkvöld og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna og fimm ökumenn fyrir ölvunarakstur.„Þetta er vissulega há tala, þetta er alls ekki gott,“ segir Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi. Hann segir ekki um átak lögreglu að ræða.„Lögregla var ágætlega mönnuð í nótt og duglegt fólk á vaktinni. Á milli útkalla sinntu menn eftirliti og þetta var niðurstaðan,“ segir Jón Þór.Hann segir færri útköll hafa komið í nótt en búist var við og því hafi gefist meiri tími til að sinna eftirliti.Jón Þór segir lögreglu hafa sinnt töluverðum fjölda verkefna um helgina sem gengið hafi vel að leysa.