Sigurvegarar Landsmóts hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal í vikunni eru þeir Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson með hvorki meira né minna en 9,13 í aðaleinkunn. Halla Tómasdóttir forseti Íslands heiðraði gesti jafnframt með nærveru sinni og veitti verðlaun á lokadegi mótsins.