Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd

Norska flugfélagið Norwegian hefur staðið við veðmál sitt við breska flugfélagið British Airways og breytt um forsíðumynd á Instagram-reikningi sínum. Vörumerki British Airways prýðir nú síðuna.Norwegian efndi til veðmálsins á dögunum í aðdraganda leiks Englands og Noregs á HM í knattspyrnu karla sem fór fram í gær. Ef Noregur ynni myndi British Airways breyta sinni forsíðumynd í merki Norwegian og öfugt.England sigraði Noreg 2-1 í gærkvöld og þar með tapaði Norwegian veðmálinu. Norwegian eru menn orða sinna og lítur Instagram-reikningur þeirra svona út í dag:Skjáskot / Instagram/flynorwegian
Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd