Núverandi kirkjugarður á Selfossi við bakka Ölfusár og rétt hjá kirkjunni er langt kominn með að fyllast og því hafa bæjaryfirvöld í Árborg verið að leita að landi undir nýjan garð. Nokkrir staðir hafa verið skoðaðir innan sveitarfélagsins en þeir hafa ekki þótt heppilegir en nú er líklega búið að finna land undir nýjan kirkjugarð.Bragi Bjarnason er bæjarstjóri í Árborg.„Það hefur gengið vel að finna nýtt svæði og við erum nú að skoða svæði austan við Selfoss með nágrönnum okkar í Flóahreppi. Þetta er stórt svæði, sem er í eigu Sveitarfélagsins Árborgar og lítur bara mjög vel út með framhaldið og ég vona bara að við getum klárað skipulagsvinnuna með Flóahreppi núna á næstu mánuðum þannig að við getum fastsett kirkjugarð til framtíðar,” segir Bragi.Þannig að það verður kirkjugarður í Flóahr