Skipuleggendur telja votviðri gærkvöldsins hvorki hafa haft teljandi áhrif á aðsókn né upplifun gesta Kótelettunnar á Selfossi, þangað sem þúsundir manns flykktust til þess að gæða sér á grillmat og fylgjast svo með tónlistarflutningi Páls Óskars, FM95BLÖ, Birnis, Klöru Einars, Emmsjé Gauta, Selmu Björns, og margra til viðbótar um kvöldið.