Fjórir drepnir í árásum á Úkraínu

Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í dróna- og eldflaugaárásum Rússa á Úkraínu í nótt, þrír í Dnipropetrovsk-héraði og einn í Kherson. Rússar hafa gert þungar og mannskæðar árásir á Úkraínu síðustu daga og vikur, en á morgun munu bandalagsþjóðir Úkraínu funda um frekari aðgerðir til að þrýsta á Rússa um að láta af hernaði fjórum og hálfu ári eftir allsherjarinnrás í Úkraínu.Úkraínuher hefur átt í sérstökum vandræðum með að verjast langdrægum flaugum Rússa sem ná margföldum hljóðhraða og vonast til að fá sem fyrst að framleiða skot í Patriot-loftvarnakerfið til að ná að verjast hljóðfráum flaugum.
Fjórir drepnir í árásum á Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd