Hátíðarhöld á Kótelettunni gengu nokkuð vel en fjórir gistu fangaklefa

Hátíðarhöld á Kótelettunni á Selfossi hafa gengið nokkuð vel að sögn Bryndísar Jóhannesdóttur, aðalvarðstjóra Lögreglunnar á Suðurlandi. Hún segir þó alltaf koma upp mál þegar svo margir komi saman.Meiri erill hafi verið í nótt en daginn áður enda fleira fólk á svæðinu. Fjórir gistu fangaklefa í nótt.„Það voru náttúrulega einhverjir eins og alltaf pústraðir inni á svæðinu og einhver svona mál sem komu upp. Engin svo sem meiri háttar líkamsárás eða slíkt en við vorum með meiri háttar eignaspjöll. Svo var einn sem fékk að gista fangaklefa fyrir ofbeldi gegn lögreglumanni,“ segir Bryndís.Hún segir umferðina hafa verið þunga í gær og gerir ráð fyrir að svo verði aftur í dag.„En við gerum svona ráð fyrir að fólk fari að tygja sig upp úr tíu. Þannig að við gerum ráð fyrir að það verði þung umfer
Hátíðarhöld á Kótelettunni gengu nokkuð vel en fjórir gistu fangaklefa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd