Erill á slysadeild í Ósló – engin meiðsli rakin til sýndarróðurs

Norðmenn slógu ekkert af HM-stemmningunni þrátt fyrir tap gegn Englandi í 8-liða úrslitum í gær. Mikill erill var í miðborginni og talsvert álag á slysadeild.Í frétt NRK, norska ríkisútvarpsins, segir að 45 hafi komið þar inn frá miðnætti fram til klukkan sjö um morguninn. Það sé álíka og gengur og gerist á nýársnótt og þjóðhátíðardaginn og svipað og var þegar landsliðið vann frækinn sigur á Brasilíu í vikunni.Haft er eftir Matrine Enger á slysadeildinni að þetta hafi verið meira en á venjulegri helgarnótt. Mikil ölvun var í miðborginni og eru 24 slys rakin til leiksins í gær. Ekkert þeirra er þó talið tengjast sýndarróðri sem stuðningsfólk norska landsliðsins hefur hlotið heimsfrægð fyrir.
Erill á slysadeild í Ósló – engin meiðsli rakin til sýndarróðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd