Gul viðvörun á Norðvesturlandi og áfram hlýjast á norðaustanverðu landinu

Gular viðvaranir eru í gildi á Norðvesturlandi þar sem er allhvass eða hvass vindur. Í dag er stíf sunnan- og suðvestan átt.Á Norður- og Austurlandi verður bjart á köflum og áfram verður hlýjast á norðaustanverðu landinu þar sem hiti verður víða 20 til 25 stig þegar best lætur.Vestantil á að rigna seinni partinn. Þar má búast við töluverðri úrkomu í kvöld.Á morgun má búast við hægari suðlægri átt og rigningu um tíma í flestum landshlutum, einkum suðvestan- og vestanlands. Þá verður hiti 10 til 22 stig, hlýjast eystra.Á þriðjudag er útlit fyrir svipað en líklega að mestu þurrt á Austurlandi.
Gul viðvörun á Norðvesturlandi og áfram hlýjast á norðaustanverðu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd