Íranar hafa ráðist að skotmörkum í Barein, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í nótt. Árásirnar eru svar við árásum Bandaríkjamanna fyrr í nótt, þeim þriðju í þessari viku. Árásir Bandaríkjanna beindust að Bandar Abbas, Sirik og öðrum skotmörkum við strandlengju Írans. Ekki hafa borist fregnir af mannfalli.Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja loftvarnakerfi landsins hafa verið virkjuð til að verjast dróna- og flugskeytaárásum Írana. Sprengingar hafa heyrst í Doha, höfuðborg Katar, í nótt. Her landsins sagði í yfirlýsingu að hann ynni að því að stöðva árásir Írana. Þá ómuðu loftvarnarflautur í Barein. Í frétt AP segir að það sé óvíst hvaða skotmörk Íranar höfðu í sigtinu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Íranar hafa ekki ráðist á landið síðan í maí.Seint í gærkvöld til