Fellibylurinn Bavi skellur á austurströnd Kína

Fellibylurinn Bavi náði landi á austurströnd Kína síðdegis í gær. Nærri tvær milljónir voru fluttar á brott í aðdraganda fellibyljarins, flestir í Zheijang-héraði. Neyðarsveitir í héraðinu hafa í dag notað gröfur og keðjusagir til þess að ryðja burt trjám sem féllu á götur í miklum vindi. Í borginni Yueqing féllu yfir 1.300 tré. Rúmlega helmingur þeirra rifnaði upp með rótum. Eftir mikla úrkomu urðu sums staðar aurskriður og vatnselgur olli víða usla.Á leið sinni til Kína fór Bavi fram hjá Taívan. Slökkvilið landsins segir 134 hafa slasast í óveðrinu, flestir þeirra féllu af mótorhjólum eða urðu fyrir lausamunum sem fuku til.
Fellibylurinn Bavi skellur á austurströnd Kína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd