Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í kvöld að lokað hefði verið fyrir umferð skipa um Hormússund, þar til annað verður ákveðið.Ákvörðunin var sögð tekin eftir að varúðarskotum var skotið í átt að skipi sem sjóher Írans segir að hafi ætlað að sigla ósamþykkta siglingaleið um sundið. Í tilkynningu byltingarvarðarins segir að nokkur skip hafi gert tilraun til að sigla eftir þessari siglingaleið. Áhafnir þeirra hafi ekki fylgt skipunum Írana um að breyta stefnu sinni, að því er segir í frétt Reuters.Stjórnstöð Bandaríkjahers greindi frá því í kvöld að herinn hefði hafið röð árása á Íran. Þetta er í þriðja sinn í þessari viku sem það gerist. Árásin er sögð svar við „blygðunarlausri árás“ Íranshers á flutningaskip í Hormússundi.Í tilkynningu hersins segir að eins skipverja sé saknað. Þar segir