Einn í haldi grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Widdecombe á kosningafundi Umbótaflokksins árið 2024.EPA / ADAM VAUGHANLögreglan í Suður-Yorkshire á Englandi hefur handtekið mann sem er grunaður um morðið á Ann Widdecombe.Hinn grunaði er 28 ára gamall breskur ríkisborgari. Í tilkynningu lögreglu er sérstaklega tekið fram að hann sé hvítur á hörund.Widdcombe var atvinnumálaráðherra og fangelsismálaráðherra fyrir Íhaldsflokkinn en gekk svo til liðs við Brexit-flokkinn sem síðar varð Umbótaflokkurinn. Hún sat á þingi til ársins 2010 og á Evrópuþingi þar til Bretar gengu úr Evrópusambandinu árið 2020. Lögreglan segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur.
Einn í haldi grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd