Íranar loka Hormússundi

Íranski byltingarvörðurinn tilkynnti í kvöld að lokað hefði verið fyrir umferð skipa um Hormússund, þar til annað verður ákveðið.Ákvörðunin var sögð tekin eftir að varúðarskotum var skotið í átt að skipi sem sjóher Írans segir að hafi ætlað að sigla ósamþykkta siglingaleið um sundið. Í tilkynningu byltingarvarðarins segir að nokkur skip hafi gert tilraun til að sigla eftir þessari siglingaleið. Áhafnir þeirra hafi ekki fylgt skipunum Írana um að breyta stefnu sinni, að því er segir í frétt Reuters.Mojtaba Khamenei, æðstiklerkur Írans, sór þess eið í dag að hefna föður síns og forvera í embætti, Ali Khamenei, en hann var ráðinn af dögum í fyrstu árásum Ísraels og Bandaríkjanna í febrúar. Í skriflegri yfirlýsingu, þeirri fyrstu síðan útfararathöfn fyrir föður hans hófst fyrir viku, sagði han
Íranar loka Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd