Enn olíuskortur og rafmagnsleysi

Myrkrið umlykur höfuðborgina Havana, nokkuð sem fólki er ekki ókunnugt en víðtækt rafmagnsleysi er mun tíðara en áður.Slæmt ástand varð enn verra eftir að Bandaríkin stöðvuðu nær allan olíuinnflutning til Kúbu í lok janúar, með því að hóta þjóðum sem selja Kúbverjum olíu með tollum. Rússneskt olíuskip komst til Kúbu með birgðir í lok mars, þær dugðu út apríl. Kúbverjar framleiða aðeins um 40% af olíunni sem þeir nota sjálfir.Þetta hefur meðal annars afar mikil áhrif á samgöngur. Rafmagnsþríhjól eru orðin eina leiðin fyrir marga til þess að komast á milli á öðru en tveimur jafnfljótum.Á meðan íbúar segja ástandið verða að breytast benda stjórnvöld á Kúbu og í Bandaríkjunum hver á önnur.
Enn olíuskortur og rafmagnsleysi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd