Slökkvilið eru loks að ná tökum á mannskæðustu gróðureldum á Spáni í áraraðir. Tólf hafa fundist látin og eyðileggingin er mikil.Lucinda Curtois kom til Spánar með eiginmanni sínum og tveimur börnum á fimmtudag í sumarfrí sem breyttist snögglega í martröð.„Við komum niður fjallið og bjuggumst ekki við því að rekast á eldvegg. Það var mjög ógnvekjandi og hugurinn fór á mikið flug, hvernig kæmist ég aftur gegnum þorpið án þess að brenna því eldarnir skutust upp fjallið meðfram þessum vegi,“ segir hún.Mannskæðustu gróðureldar í áraraðir á Spáni eru loks í rénun. Tólf fórust í eldunum og eyðileggingin er mikil. Bresk fjölskylda á ferðalagi slapp undan eldunum en vinafólk þeirra fannst látið.Fjölskyldan dvaldi í þúsund manna bænum Bédar. Tólf fórust í eldunum, þeirra á meðal breskir ríkisborgar