Fjármálaráðherra segir óviðunandi að opinberar framkvæmdir tefjist ítrekað vegna kærumála. Hann boðar frumvarp í haust sem tekur á fjárfestingum ríkisins. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir kærurnar tilkomnar vegna skorts á eftirliti. ÓVIÐUNANDI AÐ FRAMKVÆMDIR TEFJIST ÍTREKAÐ „Þetta er alls ekki viðunandi. Ef við berum saman málafjölda kærunefndar útboðsmála á Íslandi og í Danmörku þá er málafjöldinn um það bil sá sami, þótt þar sé verið að tala um mun stærra samfélag. Þetta er til merkis um að á einhvern hátt sé pottur brotinn og þetta er til alvarlegrar skoðunar,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.Uppbygging nýs Landspítala og þjóðarhallar hefur tafist um sex mánuði hið minnsta vegna kærumála.Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri um byggingu þjóðhallar, segir fimmtu k