Laugavegshlaupið var í dag og mættu keppendur frá 33 þjóðum. Margir af fremstu hlaupurum landsins voru meðal þátttakenda. Hlaupið er 55 kílómetrar - farið er af stað úr Landmannalaugum og Laugavegurinn hlaupinn inn í Húsadal í Þórsmörk þar sem því lýkur. Alls voru 824 keppendur skráðir til leiks þetta árið en þetta er í þrítugasta skiptið sem hlaupið er haldið. Hin sænska Tove Alexandersson var meðal þátttakenda. Hún er margfaldur heimsmeistari í utanvegahlaupum og hefur unnið 23 gullverðlaun á HM í greininni. Hún stóð undir væntingum og sló brautarmetið í kvennaflokki. Hún kom í mark á fjórum klukkutínum, fjórtán mínútum og átta sekúnum og sigraði um leið kvennaflokkinn öruggt því hún var rúmum 40 mínútum á undan næstu konu. Brautarmetið var áður í höndum Andreu Kolbeinsdóttir en það sett