Vonar að Íslendingar segi „Heia Norge“ í kvöld eins og Norðmenn sögðu „Áfram Ísland“ fyrir 10 árum

Stuðningsmenn norska liðsins á Íslandi koma margir hverjir saman í kvöld og horfa á leik Norðmanna gegn Englandi, meðal annars á sportbarnum Ölver.Þar var söngvarinn Eiríkur Hauksson staddur en óhætt er að segja að hann eigi sér stað í hjörtum beggja þjóða enda hefur hann keppt í Eurovision fyrir hönd bæði Noregs og Íslands.Aðspurður segir Eiríkur síða hár norska framherjans Erling Haaland eflaust hafa sitt að segja um velgengni hans á mótinu.Silje Beite Løken, stuðningsmaður norska liðsins, segist finna fyrir stuðningi Íslendinga.„Mér finnst svo gaman að því fyrir 10 árum þá vorum við að kalla: „Áfram Ísland!“ í Noregi og núna vona ég að Íslendingar séu að segja: „Heia Norge!“ segir Silje.
Vonar að Íslendingar segi „Heia Norge“ í kvöld eins og Norðmenn sögðu „Áfram Ísland“ fyrir 10 árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd