Krummafótur er ný sviðslistahátíð sem haldin er á Akureyri um helgina. Þau Þorbjörg Þóroddsdóttir og Stormur Thoroddsen, sem bæði stunda nám við sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands, eru skipuleggjendur hátíðarinnar.Sviðshöfundarnir upprennandi segja hátíðina gefa Akureyringum og fólki um land allt tækifæri til að sýna grasrótarsviðslistir. Þau segja hugmyndina hafa kviknað í náminu. FÖTTUÐU AÐ ÞAU GÆTU GERT ÞETTA SJÁLF „Við Stormur erum bæði í sviðshöfundanáminu í Listaháskólanum og erum svolítið dugleg að kvarta yfir því hvað allt sé Reykjavíkurmiðað og höfuðborgarmiðað og að allur peningurinn sé þar en ekkert á Akureyri og ákváðum að það þyrfti að gera eitthvað í því,“ segir Þorbjörg.„Við föttuðum náttúrulega að við gætum bara gert þetta sjálf,“ segir Stormur.Þau eru bæði Akureyr