Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi lækkað lítillega frá maí til júní sýna nýjar tölur Vinnumálastofnunar sem komu út í gær að staðan á íslenskum vinnumarkaði er verri en fyrir ári síðan. Samhliða því voru 156 ný atvinnuleyfi gefin út í júní, þar af 47 vegna fjölskyldusameininga. Samkvæmt mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar mældist atvinnuleysi 4,0% í lok júní. […] Greinin Atvinnuleysi eykst milli ára – en 156 ný atvinnuleyfi gefin út í júní birtist fyrst á Nútíminn.