Íbúar á stúdentagörðum hafa orðið varir við að utanaðkomandi aðilar geri sig heimakomna í almenningsrýmum garðanna, brjótist inn og jafnvel steli.Vildís Harpa Sævarsdóttir býr á Skjólgörðum, stúdentagörðum í Brautarholti. Hún segist hafa orðið vör við að einhver búi inni á sameiginlegu salerni í stigagangi garðanna. Vildísi fór að gruna að einhver hefði komið sér fyrir inni á salerninu vegna þess að þar var nánast alltaf læst. „Fólk sem býr hérna notar ekki þetta klósett, það notar klósettin í íbúðinni sinni,“ segir Vildís.Í þau fáu skipti sem salernið er ólæst segir Vildís oft vera fullt af drasli og öðrum hlutum þar inni, t.d. jakki, sígarettustubbar, flöskur og poki merktur apóteki.Þar að auki segir Vildís að brotist hafi verið inn í geymslur á Skjólgarði og bíla í bílakjallaranum. HE