Opnað var fyrir bílaumferð yfir nýju brúna yfir Breiðholtsbraut snemma í gærmorgun. Tafir geta orðið á umferð næstu vikur þar sem framkvæmdir standa enn.Brúin liggur yfir Breiðholtsbraut milli Jaðarsels í Reykjavík og Vatnsendahvarfs í Kópavogi. Vegurinn var lokaður frá ellefu á fimmtudagskvöld meðan færsla umferðar var undirbúin.„Þetta er stór áfangi í mjög stóru verki. Við erum búin að vera með framkvæmdir í gangi síðan í september 2023 og verkið gengur út á að tengja Arnarnesveginn frá Breiðholtsbraut og inn á Austurkór og Rjúpnaveg í Kópavogi,“ segir Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.