Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnenda Áfram-Ísland og forstjóri fasteignafélagsins Heima, gerir ráð fyrir því að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri muni beita sér af fullum þunga þegar nær dregur að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður.Seðlabankastjórinn hafi áður sagt að rótarorsökin fyrir háum stýrivöxtum í íslensku hagkerfi séu miklar launahækkanir, umfram það sem samið er um í kjarasamningum. TELUR AÐ ATVINNULEYSI AUKIST ÁN KRÓNUNAR Halldór Benjamín var gestur í Vikulokunum í dag ásamt Snærós Sindradóttur, framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar og eiganda listagallerísins Sind.Hann segir Ísland vera sveiflukennt hagkerfi og í dag sé gengi krónunnar eins konar ventill í hagkerfinu. Hann telji veruleikann verða allt annan taki Ísland upp evru. > Núna höfum við gengi krónu