Hundruð slökkviliðsmanna unnu í alla nótt og hagstæðari veðurskilyrði hafa skipt sköpum í baráttunni við eldana. Loftið er rakara í dag og minni vindur á þeim svæðum sem verst urðu úti.Yfirvöld í Andalúsíuhéraði segja slökkviliðsmenn nú vinna að því að slökkva eldana sjálfa en framan af hafði starfið aðallega miðað að því að hamla útbreiðslu þeirra.Jeffrey Kember, Breti sem býr í þúsund manna bænum Bédar, lýsir flóttanum. „Ég keyrði í gegnum Los Pinos og upp. Ég keyrði í gegnum loga, raunverulega loga og hugsaði; Ég get ekki stoppað, ég verð að halda áfram.“Slökkviliðsmenn á Spáni hafa náð tökum á gróðureldunum sem hafa orðið minnst 12 að bana í Andalúsíu. Sjö manns er enn saknað og um 1500 þurftu að flýja heimili sín.Eiginkona hans var á öðrum bíl en þau náðu bæði að komast heil í fjöldah