„Þetta hljómar eins og þetta sé eitthvað agalegt,“ segir Einar Örn Benediktsson söngvari hljómsveitarinnar Purrks Pillnikk sem gaf út efni á árunum 1981-1982 en kveður sér nú hljóðs á ný og gefur út glænýtt lag sem kallast Læknir og svín.„Við eigum dágóðan slatta af tónlist og hví ekki að gefa út nýtt lag núna,“ svaraði Einar sem var staddur á Listavestrinu á Flateyri þegar hann var spurður um útgáfuna. Einar segir mögulega von á stórri plötu í haust.Meðlimir Purrksins eru líkt og fyrr þeir Bragi Ólafsson, Friðrik Erlingsson ásamt Einari Erni en stólaskipti urðu á trommunum þegar Sigtryggur Baldursson settist þar eftir fráfall Ásgeirs Bragasonar trommara Purrksins fyrir fáeinum árum.Heyra má viðtalið við Einar Örn í Fram undan á Rás 2 ásamt nýja laginu með því að smella á myndina að ofan.