Kærur vegna útboða hafa tafið byggingu þjóðarhallar og nýs Landspítala um hálft ár hið minnsta. Fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem tekur meðal annars á kærum vegna opinberra framkvæmda. FJÖLDI KÆRA SAMI OG Í DANMÖRKU „Þetta er alls ekki viðunandi. Ef við berum saman málafjölda kærunefndar útboðsmála á Íslandi og í Danmörku þá er málafjöldinn um það bil sá sami, þótt þar sé verið að tala um mun stærra samfélag. Þetta er til merkis um að á einhvern hátt sé pottur brotinn og þetta er til alvarlegrar skoðunar,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.Uppbygging nýs Landspítala og þjóðarhallar hefur tafist um sex mánuði hið minnsta vegna kærumála. Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri um byggingu þjóðarhallar, segir fimmtu kæruna hafa borist um miðjan síðasta mánuð.