Friða fiskihjalla í Fjallabyggð

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur ákveðið að friða hluta gamalla fiskihjalla sem standa við Kleifarhorn og Ósbrekkusand í Ólafsfirði.Fyrir nokkrum mánuðum auglýsti bæjarfélagið eftir eigendum fiskihjallanna, sem margir eru að hruni komnir. Enginn gaf sig fram sem vildi eiga fiskihjallana og nú hefur bæjarráð ákveðið að friða hluta þeirra og byggja einn nýjan í gamla stílnum. HREINSUNAR- OG UPPBYGGINGARSTARF FRAMUNDAN Helgi Jóhannsson, formaður bæjarráðs í Fjallabyggð, sagði í samtali við fréttastofu að búið væri að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna verkefnisins.Nokkuð hreinsunarstarf er framundan til þess að fjarlægja þá sem ónýtir eru og reisa nýjan. Efnið sem hjallarnir eru byggðir úr er ekki lengur flutt til landsins og því má búast við töluverðum kostnaði við verke
Friða fiskihjalla í Fjallabyggð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd