Ann Widdecombe, breskur stjórnmálamaður og sjónvarpsstjarna, fannst látin á heimili sínu með alvarlega áverka á fimmtudag, 78 ára að aldri.Lögregla rannsakar dauða hennar sem morð. 26 ára Breti sem hefur verið í gæsluvarðhaldi var látinn laus í dag. Lögregla segir hann ekki lengur til rannsóknar en segir rannsókninni „miða vel áfram“. EKKI RANNSAKAÐ SEM HRYÐJUVERK Andlát hennar var tilkynnt í gærmorgun og síðdegis í gær tilkynnti lögreglan í Devon og Cornwall að morðrannsókn væri hafin og birti upplýsingar um grunaðan einstakling. Samkvæmt lögreglu er ekkert sem bendir til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk.Töluverður lögregluviðbúnaður er við hús Widdecombe í Dartmoor í Devon samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins, nokkrir lögreglubílar á veg