Hljóðfráar eldflaugar skullu á Kænugarði

Ellefu eru særðir eftir árásir Rússlandshers á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Þar á meðal er eitt barn. Frá þessu segir Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu á samfélagsmiðlum í morgun.Rússar hafa látið eldflaugum og sprengidrónum rigna yfir Úkraínu síðustu mánuði, en undanfarið hafa þeir notað hljóðfráar eldflaugar í ríkari mæli. Fyrstu sprengingarnar í nótt skóku Kænugarð áður en loftvarnarflautur gullu. Loftvarnarflautur gullu við í Kænugarði í nótt þegar Rússar gerðu enn eina árásina á borgina. Rússar beittu meðal annars hljóðfráum flaugum sem hæfðu skotmörk sín áður en borgarbúar fengu viðvörun.Zelensky segir Rússa hafa skotið 120 drónum og 12 eldflaugum á skotmörk í Úkraínu, meðal annars í Odesu, Sumy og Kharkiv. Helmingur eldflauganna var hljóðfrár.Meðal bygginganna sem skemmdust
Hljóðfráar eldflaugar skullu á Kænugarði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd