Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í síðustu viku er látin. Þessu greinir Lögreglan á Suðurlandi frá.Konan fannst ásamt manni sínum í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu þann 4. júlí. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi en konan var flutt á gjörgæslu þungt haldin.Lögreglu grunar að hitari, sem var inni í tjaldinu, hafi verið orsök gaseitrunar.Pexels /