Í gær kláraðist tíunda umferð Bestu deildar kvenna en um var að ræða mjög athyglisverða umferð. Fram, botnlið deildarinnar, gerði sér lítið fyrir og tók sigur gegn toppliðinu, Breiðabliki. Einhver óvæntustu úrslit fótboltasumarsins til þessa. Anton Ingi Rúnarsson er auðvitað þjálfari umferðarinnar og þá komast Ashley Brown Orkus, Taylor Marie Hamlett og Harpa Helgadóttir í lið umferðarinnar.