„Viðræður eru í góðum farvegi og næsti fundur verður í ágúst,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Sjómenn á smábátum hafa upp á síðkastið fundað um kjaramál en síðustu tólf ár hafa þeir verið án samnings.Valmundur segir kröfur hafa verið kynntar og sumarið fara í útreikninga. „Það er reikningsdæmi fram undan.“Viðræður um samninga smábátasjómanna fóru af stað árið 2024 eftir að samningur náðist við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um stærri skipin en runnu svo í sandinn.Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins.RÚV / Skjámynd