Í dag má búast við nokkuð stífum vindi og vindstrengir í norðvesturfjórðungi landsins geta orðið varasamir, einkum fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir valdi. Hæð vestur af Írlandi sem þokast norðaustur stýrir veðrinu auk þess sem þrýstingur við suðurströnd Grænlands verður tiltölulega lágur.Þannig beinist hlýr loftmassi til landsins og áttin verður úr suðri eða suðvestri.Hitastig er misjafnt milli landshluta, á Suður- og Vesturlandi verður skýjað og súld með köflum með hita 10 til 15 stig. Enn verður mjög hlýtt norðaustan- og austanlands, bjart veður og hitinn yfirleitt á bilinu 18 til 25 stig. Ekki er ólíklegt að á stöku mælistöð á Austurlandi eða Austfjörðum geti hitinn náð aðeins hærra.Seinni partinn á morgun á að rigna vestantil á landinu.Í næstu viku verður vætusamt og áfram suðlæg át