Japanska geimvísindastofnunin, JAXA, skaut í dag frumgerð að endurnýtanlegri eldflaug á loft. Fyrirtækið SpaceX hefur hingað til ráðið lögum og lofum á sviði endurnýtanlegra eldflauga. Vel heppnað tilraunaskotið er talið framfaraspor í þróun þeirra.Frumgerðinni var skotið á loft frá tilraunastöð JAXA í Noshiro í Japan. Flaugin fór ekki hátt, hún náði tíu metra hæð og sveif þar í lausu lofti áður en hún lenti aftur. Flug hennar varði í um 40 sekúndur.Tilraunaflugið varði aðeins í um 40 sekúndur. Flaugin náði um 10 metra hæð áður en hún lenti aftur, heilu og höldnu.Takashi Ito, sem stýrði tilraunaskotinu fyrir JAXA, sagði við blaðamenn að honum hefði verið mjög létt eftir að flaugin lenti aftur heilu og höldnu. Hann sagði starfsmenn stofnunarinnar þurfa að fara yfir gögn til að ákveða hversu