Hundruð þúsunda flutt á brott fyrir komu fellibyljarins Bavi

Yfir 600 þúsund manns hafa verið flutt á brott úr borginni Wenzhou við austurströnd Kína. Gert er ráð fyrir að fellibylurinn Bavi nái landi í grennd borgarinnar í fyrramálið. Þar búa um 10 milljónir manna.„Ég er smá áhyggjufullur en ég held að þetta verði allt í lagi. Við höfum fengið fellibylji áður. Við komumst í gegnum þetta,“ hefur Reuters eftir einum íbúa borgarinnar sem var að versla inn á matarmarkaði í borginni. Hann sagði fjölskyldu sína eiga vatnsbirgðir til tveggja eða þriggja daga.„Það er engin ástæða til þess að missa stjórn á sér og hamstra fullt af mat eða öðrum nauðsynjum,“ bætti hann við.Fellibylurinn olli miklum usla á Sakishima-eyjum syðst í Japan þegar hann fór þar yfir með mikilli rigningu og kröftugum vindi. Stöðugur vindhraði var mestur 40 metrar á sekúndu en náði 55
Hundruð þúsunda flutt á brott fyrir komu fellibyljarins Bavi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd