Félagið Fiskikóngurinn ehf., sem Kristján Berg Ásgeirsson er jafnan kenndur við, hagnaðist um 7 milljónir króna í fyrra en alls högnuðust þrjú félög hans um 117 milljónir. Þetta kemur fram í ársreikningi þess fyrir 2025. Fiskikóngurinn ehf. hafði hagnast um 76 milljónir króna árið áður. Í lok árs í fyrra námu eignir þess 654 milljónum króna, skuldir 49 milljónum króna...