Atlantshafsbandalagið (NATO) efndi til ríkisoddvitafundar í Ankara í vikunni. Þar var ítrekuð óhagganleg skuldbinding stjórnvalda ríkjanna í þágu sameiginlegra varna samkvæmt 5. grein Atlantshafssáttmálans og um samstarf ríkjanna beggja vegna Atlantshafs. Árás á eitt bandalagsríki er árás á þau öll, segir í ályktuninni.