Endurnýtanleg eldflaug hóf sig til flugs og lenti aftur í Japan

Japanska geimvísindastofnunin, JAXA, skaut í dag frumgerð að endurnýtanlegri eldflaug á loft. Fyrirtækið SpaceX hefur hingað til ráðið lögum og lofum á sviði endurnýtanlegra eldflauga. Vel heppnað tilraunaskotið er talið framfaraspor í þróun þeirra.Frumgerðinni var skotið á loft frá tilraunastöð JAXA í Noshiro í Japan. Flaugin fór ekki hátt, hún náði tíu metra hæð áður en hún lenti aftur. Flug hennar varði í um 40 sekúndur.Takashi Ito, sem stýrði tilraunaskotinu fyrir JAXA, sagði við blaðamenn að honum hefði verið mjög létt eftir að flaugin lenti aftur heilu og höldnu. Hann sagði starfsmenn stofnunarinnar þurfa að fara yfir gögn til að ákveða hversu vel heppnuð tilraunin hefði verið. Hann væri þó sannfærður um að gagnlegum gögnum hefði verið safnað.Flestar eldflaugar eru hannaðar með það í
Endurnýtanleg eldflaug hóf sig til flugs og lenti aftur í Japan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd