Trump segir herinn tilbúinn til að útrýma Íran ef honum verður sýnd banatilraun

Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher reiðubúinn til að „útrýma og eyðileggja allt landsvæði Írans,“ ef Íranar sýni honum banatilræði.Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að yfirvöld í Ísrael hefðu deilt leyniþjónustugögnum með bandarískum yfirvöldum sem sýndu að Íranar hefðu lagt á ráðin um að myrða Trump.Í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social segir Trump að 1000 flugskeyti séu til reiðu og að þeim sé miðað á Íran. Þúsundir flugskeyta til viðbótar myndu fylgja strax á eftir ef stjórnvöld í Íran myndu ráða Trump af dögum eða reyna það.Trump segir Bandaríkjaher nú þegar hafa fengið skipanir um að ráðast til atlögu ef þurfa þykir. Herinn sé tilbúinn, fús og fær um að framfylgja þeim í að minnsta kosti eitt ár.Færslunni lýkur Trump með orðunum: „Lofaður sé A
Trump segir herinn tilbúinn til að útrýma Íran ef honum verður sýnd banatilraun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd