Krem með kattarmintu hefur reynst álíka áhrifaríkt og DEET til að fæla í burtu moskítóflugur. Þetta sýna prófanir á kreminu í Úganda.Kattarminta er algeng mintutegund. Nafnið er tilkomið vegna þess að jurtin gefur frá sér lykt sem kettir eru sólgnir í. Lyktin fælir auk þess burt moskítóflugur. Mintan hefur ekki verið markaðssett í þeim tilgangi áður.DEET er aftur á móti algengt efni í flugnafælandi kremum eða úða. Það hefur til dæmis verið notað sem vopn í baráttu Íslendinga við lúsmýið. Aðeins er talið ráðlegt að nota efnið í litlu magni, þar sem það er talið geta haft neikvæð áhrif á heilsu manna og umhverfi í of stórum skömmtum. ÁHYGGJUR AF AUKN ÞOLI FLUGNANNA FYRIR SKORDÝRAEITRI Í frétt á vef Guardian segir að nýjar lausnir þurfi í baráttunni gegn malaríu. Rúmlega 280 milljónir smit