Úkraínsk yfirvöld segja Rússlandsher hafa gert flugskeytaárás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.Blaðamenn AFP heyrðu tvær lotur sprenginga í borginni í nótt. Loftvarnarflautur ómuðu nokkrum mínútum eftir fyrstu sprenginguna.Tymur Tkachenko, forsvarsmaður hermálayfirvalda í borginni, staðfestir á Telegram að eldflaugaárás hafi verið gerð. Hann hvetur íbúa til að leita skjóls.Á síðustu vikum hefur Rússlandsher beint tugum ofurhraðskreiðra skotflauga í átt að úkraínsku höfuðborginni en loftvarnarkerfi í landinu hafa ráðið illa við þær. Mikill skortur hefur verið á Patriot-flaugum í Úkraínu en Bandaríkjamenn ætla að leyfa Úkraínumönnum að framleiða sínar eigin flaugar.Í morgun gerði Úkraínuher árás á olíuhreinsistöðvar í suðurhluta Rússlands. Árásir Úkraínumanna hafa að undanförnu beinst í