Róbert Aron Hostert er nafn sem allir handboltaunnendur á Íslandi þekkja enda hefur hann spilað í efstu deild á Íslandi nánast óslitið undanfarna tvo áratugi. Hann lagði nýverið skóna á hilluna eftir einstaklega farsælan feril með sínum sjötta Íslandsmeistaratitli.Róbert kom í spjall í Sportrásina á Rás 2 og gerði upp þennan glæsta meistaraflokksferil sem hófst í Safamýrinni með Fram tímabilið 2008/2009. Róbert er uppalinn Frammari en hefur þó orðið Íslandsmeistari með þremur mismunandi félögum á Íslandi en auk Fram eru það ÍBV og Valur. HVORT ER ÞAÐ FRAM EÐA VALUR? Aðspurður að því hvort það slái ennþá Fram-hjarta í honum eftir öll þessi vistaskipti svaraði hann: > „Já, ég er auðvitað uppalinn, byggði upp grunninn þarna í Fram. Auðvitað er maður blár, maður kannski blandast svolítið e