Aðstoðuðu dreng sem festi fótinn í trjágróðri

Slökkviliðsmaður úr slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Þórgunnur OddsdóttirSlökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning upp úr klukkan tíu í kvöld um reyk á Hólmsheiði.Í ljós kom að reykurinn stafaði af varðeldi við sumarhús og því var óþarfi fyrir slökkviliðsmenn að aðhafast að sögn varðstjóra.Síðdegis í dag barst tilkynning um fjögurra ára gamlan dreng sem hafði fest fótinn í trjágróðri við leik í Garðabæ. Hann var losaður eftir að aðstoð barst.Þá voru slökkviliðsmenn kallaðir út í efri byggðir Reykjavíkur um klukkan níu vegna vatnstjóns í heimahúsi.
Aðstoðuðu dreng sem festi fótinn í trjágróðri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd