Gestir tjaldsvæða ekki meðvitaðir um brunahættu

Engin lög eru um brunavarnir á tjaldsvæðum og viðbragðsaðilar kvarta yfir úrræðaleysi. Halldór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir rekstraraðila tjaldsvæða og ferðamenn ekki meðvitaða um hættuna sem getur skapast.Hann segir mikinn eldsmat í hjólhýsum og öðrum útilegubúnaði og að eldur geti breiðst hratt út. Hann segir fá úrræði standa til boða. „Það eru engin lög og engar reglugerðir sem ná yfir brunavarnir á tjaldsvæðum.“Í leiðbeiningum HMS um brunavarnir á tjald- og hjólhýsasvæðum segir að að minnsta kosti fjögurra metra bil skuli vera milli eininga og aðkomuleiðir greiðar fyrir viðbragðsaðila. Viðbragðsaðilar segja fáa fara eftir leiðbeiningunum. Forvarnir gegna því lykilhlutverki.Halldór segir ferðamenn ekki nógu meðvitaða um hættuna.
Gestir tjaldsvæða ekki meðvitaðir um brunahættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd