Karl Bretakonungur og Kamilla drottning tóku á móti Harry Bretaprins, eiginkonu hans Meghan, hertogaynjunni af Sussex, og börnum þeirra í Highgrove House fyrr í dag.Húsið er einkaheimili konungshjónanna í Gloucestershire. Buckingham-höll segir heimsóknina hafa verið persónulegan fjölskylduhitting.Þetta er í fyrsta sinn sem konungurinn hittir barnabörn sín, hinn sjö ára gamla Archie og fjögurra ára gömlu Lillibet, í fjögur ár. Harry og Meghan hafa ekki heimsótt Bretland saman síðan árið 2022 þegar þau sóttu jarðarför Elísabetar drottningar. FENGU EKKI ÖRYGGISVERND Harry hefur nokkrum sinnum heimsótt landið einsamall og hitti föður sinn í slíkri heimsókn í september á síðasta ári.Hann mun sækja nokkra opinbera viðburði að þessu sinni, meðal annars Invictus-leikana, en Meghan og börnin ver