Hinn ítalski Jannik Sinner vann Novak Djokovic 3-0 í undanúrslitum Wimbledon-móts karla í tennis. Sinner þurfti þó að hafa mikið fyrir sigrinum en hann vann settin þrjú öll 6-4.Þetta er annað árið í röð sem hinn 39 ára Djokovic dettur út í undanúrslitum gegn Sinner. Sinner er ríkjandi Wimbledon-meistari.Sinner mætir Alexander Zverev í úrslitum á sunnudaginn. Hinn þýski Zverez sló út öskubuskuævintýri mótsins er hann vann heimamanninn Arthur Fery 7-6 (7-0), 6-2, og 6-4 í settum og því alls 3-0.Sinner hefur unnið síðustu 13 leiki á Wimbledon og Zverez síðustu þrettán á stórmótum. Hins vegar hefur Sinner yfirhöndina í einvígi þeirra og hefur unnið 10 af 14 skiptum.Á laugardaginn mætast Tékkarnir Linda Noskova og Karolina Muchova í úrslitum.